Námshjálp
ÞJS, Matteus 11


ÞJS, Matteus 11:13–15. Samanber Matteus 11:10–11, 13–14

Jóhannes skírari er Elía, sá sem átti að koma og undirbúa veginn fyrir frelsarann.

13 Sá dagur mun koma að hinir ofbeldisfullu munu ekkert vald hafa, því spámennirnir allir og lögmálið, allt fram að Jóhannesi, sögðu fyrir um að það yrði svo.

14 Já, jafn margir og hafa spáð, hafa sagt fyrir um þessa daga.

15 Og ef þér viljið við því taka, þá sannarlega var hann Elía, sem koma skyldi og undirbúa alla hluti.