Námshjálp
ÞJS, Matteus 26


ÞJS, Matteus 26:22, 24–25. Samanber Matteus 26:26–28; ÞJS, Markús 14:20–25

Jesús brýtur sakramentisbrauðið fyrst og síðan blessar hann það. Sakramentið er í minningu um líkama og blóð Jesú.

22 Þá er þeir mötuðust, tók Jesús brauð, braut það og blessaði, gaf lærisveinum sínum og sagði: Takið og etið, þetta er í minningu líkama míns, er ég gef sem lausnargjald fyrir yður.

24 Því að þetta er í minningu blóðs míns, hins nýja sáttmála, sem ég hef úthellt fyrir alla þá er trúa munu á nafn mitt, til fyrirgefningar synda þeirra.

25 Og ég gef yður boðorð, að þér gætið þess að gjöra það sem þér hafið séð mig gjöra, og berið vitni um mig, já allt til enda.