2017
Eiður og sáttmáli prestdæmisins
April 2017


Boðskapur heimsóknarkennara

Eiður og sáttmáli prestdæmisins

Kynnið ykkur efnið sem hér er í bænaranda og leitið innblásturs til að vita hverju best er að miðla. Hvernig getur skilningur á tilgangi Líknarfélagsins búið dætur Guðs undir blessanir eilífs lífs?

Ljósmynd
Kansas City Missouri Temple

Því betri skilning sem við systurnar höfum á því hvernig eiður og sáttmáli prestæmisins tengjast okkar daglega lífi, því auðveldara mun okkur reynast að taka á móti blessunum og loforðum prestdæmisins.

Öldungur M. Russell Ballard, í Tólfpostulasveitinni, sagði: „Allir sem hafa gert helga sáttmála við Drottin og heiðra þá sáttmála, geta hlotið persónulega opinberun, blessun englaþjónustu, átt samskipti við Guð, tekið á móti fyllingu fagnaðaerindisins og orðið erfingjar með Jesú Kristi að öllu sem faðirinn á.“1

Blessanirnar og loforðin sem tengjast eiði og sáttmála prestdæmisins, eiga við bæði um karla og konur. Systir Sheri L. Dew, fyrrverandi ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélagsins, sagði: „Fyllingu prestdæmisins, sem felst í æðstu helgiathöfn húss Drottins, geta aðeins karl og kona hlotið í sameiningu.“2

Systir Linda K. Burton, aðalforseti Líknarfélagsins, setti fram þetta boð: „Ég hvet ykkur til að læra utanbókar eið og sáttmála prestdæmisins, sem finna má í Kenningu og sáttmálum 84:33–44. Ef þið gerið það, þá heiti ég ykkur því að heilagur andi mun útvíkka skilning ykkar á prestdæminu og veita ykkur dásamlegan innblástur og uppörvun.“3

Leiðbeiningum Josephs Smith til Líknarfélagsins var ætlað að búa konur undir að „taka á móti forréttindum og blessunum og gjöfum prestdæmisins.“ Þetta verður að raunveruleika fyrir tilstilli helgiathafna musterisins.

„Helgiathafnir musterisins [eru] helgiathafnir prestdæmisins, en þær veita ekki körlum eða konum kirkjulega stöðu. [Þessar helgiathafnir uppfylla] loforð Drottins um að fólki hans – körlum og konum – muni ‚veitast kraftur frá upphæðum‘ [K&S 38:32].“4

Fleiri ritningargreinar og upplýsingar

Kenning og sáttmálar 84:19–40; 121:45–46; reliefsociety.lds.org

Ljósmynd
Relief Society seal

Trú fjölskylda líkn

Heimildir

  1. M. Russell Ballard, „Men and Women and Priesthood Power,“ Liahona, sept. 2014, 36.

  2. Sheri L. Dew, í Daughters in My Kingdom: The History and Work of Relief Society (2011), 128.

  3. Linda K. Burton, „Priesthood Power—Available to All,“ Ensign, júní 2014, 39–40.

  4. Gospel Topics, „Joseph Smith’s Teachings about Priesthood, Temple, and Women,“ topics.lds.org.