2018
Tapað fundið
April 2018


Tapað fundið

Ljósmynd
lost and found

Ég veit að himneskur faðir svarar bænum. Þegar fjölskylda mín bjó í Þýskalandi, þá fórum við í Volksmarch í bænum okkar. Volksmarch er þegar vinir og nágrannar verja tíma saman með því að ganga í náttúrunni. Foreldrar mínir sögðu að ég gæti gengið á undan hópnum með vini mínum og við hófum gönguna eftir hinni löngu slóð.

Að nokkrum mínútum liðnum, sá ég engan í fjölskyldu minni. Ég lét vin minn vita af því að ég hugðist bíða eftir þeim á slóðinni. Brátt sá ég hvorki vin minn, né fjölskyldu hans og foreldrar mínir voru enn ókomnir. Ég var einn í skóginum og varð hræddur. Ég ákvað að fara með bæn og biðja þess að einhver fyndi mig.

Annarsstaðar í skóginum fann faðir minn fyrir heilögum anda segja: „Leitaðu að syni þínum.“ Hann fann hve mikið ég þarfnaðist hans, svo hann snéri sér við og lét móður mína vita af því að hann hugðist leita mín. Fáum mínútum síðar kom faðir minn hlaupandi upp slóðann þar sem ég beið og fann mig. Ég var svo glaður að sjá föður minn! Þegar hann sagði sig hafa fundið sterklega að ég þarfnaðist hjálpar, vissi ég að himneskur faðir hafði svarað bæn minni.

Ég finn svo mikla gleði í því að geta talað við himneskan föður hvar sem ég er. Hann mun hjálpa mér að komast leiðar minnar.