Ritningar
Kenning og sáttmálar 1


Kenning og sáttmálar

1. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith 1. nóvember 1831, á sérstakri öldungaráðstefnu kirkjunnar, sem haldin var í Hiram, Ohio. Fyrir þann tíma hafði Drottinn gefið margar opinberanir og var samantekt þeirra til útgáfu í bókarformi eitt aðalmálið, sem samþykkt var á ráðstefnunni. Þessi kafli er formáli Drottins að kenningum, sáttmálum og boðum þeim, sem gefin eru á þessum ráðstöfunartímum.

1–7, Aðvörunarorð til allra manna; 8–16, Fráhvarf og ranglæti eru undanfari síðari komunnar; 17–23, Joseph Smith er kallaður til að endurreisa sannleika Drottins og kraft á jörðu; 24–33, Mormónsbók er birt og hin sanna kirkja stofnuð; 34–36, Friður mun tekinn af jörðu; 37–39, Kannið þessi boð.

1 Hlýðið á, ó þér sem í kirkju minni eruð, segir rödd hans, sem dvelur í upphæðum og beinir augum sínum til allra manna. Já, sannlega segi ég: Hlýðið á, þér sem í fjarlægð dveljið og þér sem dveljið á eyjum sjávar, hlustið saman.

2 Því að sannlega er rödd Drottins til allra manna, enginn kemst undan og ekkert auga sem eigi mun sjá, né eyra sem eigi mun heyra, né hjarta sem ósnortið verður.

3 Og mikil sorg mun nísta hina mótþróafullu, því að misgjörðir þeirra verða ræddar á húsþökum og leyniverk þeirra opinberuð.

4 Og aðvörunarraust mun berast öllum lýðum af munni lærisveina minna, sem ég hef útvalið á þessum síðustu dögum.

5 Og þeir munu ganga fram og enginn fær stöðvað þá, því að ég, Drottinn, hef gefið þeim boð.

6 Sjá, þetta er vald mitt og vald þjóna minna og formáli minn að bók boðorða minna, sem ég hef gefið þeim til að birta yður, ó jarðarbúar.

7 Óttist þess vegna og skelfist, ó þér menn, því að það sem ég, Drottinn, hef ákvarðað í þeim skal uppfyllt verða.

8 Og sannlega segi ég yður, að þeim, sem ganga fram og flytja íbúum jarðar þessi tíðindi, er gefið vald til að innsigla hina vantrúuðu og mótþróafullu, bæði á jörðu og á himni —

9 Já, sannlega, innsigla þá til þess dags, er heilagri reiði Guðs verður úthellt takmarkalaust yfir hina ranglátu —

10 Til þess dags, er Drottinn kemur og geldur hverjum manni samkvæmt verkum hans og mælir hverjum manni með þeim mæli, sem hann hefur mælt meðbræðrum sínum.

11 Rödd Drottins nær þess vegna til endimarka jarðar, svo að allir fái heyrt, sem heyra vilja:

12 Búið yður, búið yður undir það sem koma skal, því að Drottinn er í nánd —

13 Og reiði Drottins er tendruð og sverð hans er laugað á himni, og það mun falla á íbúa jarðar.

14 Og armur Drottins mun opinberaður verða og sá dagur kemur, er þeir, sem hvorki vilja hlýða á rödd Drottins né rödd þjóna hans, né heldur gefa gaum að orðum spámannanna og postulanna, munu útilokaðir frá fólkinu —

15 Því að þeir hafa vikið frá helgiathöfnum mínum og rofið ævarandi sáttmála minn —

16 Þeir leita ekki Drottins til að tryggja réttlæti hans, heldur gengur hver maður sína eigin leið og eftir ímynd síns eigin guðs, en ímynd hans er í líkingu heimsins og efniviður hans sem skurðgoðs, er eldist og ferst í Babýlon, já, Babýlon hinni miklu, sem falla mun.

17 Þess vegna kallaði ég, Drottinn, sem þekki þær hörmungar er koma munu yfir íbúa jarðar, þjón minn Joseph Smith yngri og talaði til hans frá himni og gaf honum fyrirmæli —

18 Og gaf einnig öðrum fyrirmæli um að boða heiminum þessa hluti, og allt til þess að rætast megi það sem spámennirnir hafa ritað —

19 Hið veika í heiminum mun koma og brjóta niður hina máttugu og sterku, svo að maðurinn gefi hvorki meðbróður sínum ráð né treysti á arm holdsins —

20 Heldur megi hver maður mæla í nafni Guðs Drottins, já, frelsara heimsins —

21 Að trú megi einnig eflast á jörðu —

22 Að ævarandi sáttmála mínum verði á komið —

23 Að hinir veiku og einföldu fái boðað fyllingu fagnaðarerindisins til endimarka heims, og frammi fyrir konungum og stjórnendum.

24 Sjá, ég er Guð og hef mælt þetta. Þessi boð eru frá mér og voru gefin þjónum mínum í veikleika þeirra og á tungu þeirra, svo að þeir mættu öðlast skilning.

25 Og sem þeir færu villir vegar, svo mætti það kunnugt verða —

26 Og sem þeir sæktust eftir visku, svo mættu þeir fræðslu fá —

27 Og sem þeir syndguðu, svo mættu þeir agaðir verða, til þess að þeir iðruðust —

28 Og sem þeir væru auðmjúkir, svo mættu þeir styrkir verða og hljóta blessun frá upphæðum og öðlast þekkingu smátt og smátt.

29 Já, og eftir að hafa meðtekið heimildir Nefíta, gæti jafnvel þjónn minn Joseph Smith yngri, fyrir miskunn Guðs og með krafti Guðs, öðlast kraft til að þýða Mormónsbók.

30 Og einnig mættu þeir, sem þessi boð fengu, hljóta kraft til að leggja grundvöll þessarar kirkju og leiða hana fram úr móðu og úr myrkri, hina einu sönnu og lifandi kirkju á gjörvallri jörðunni, sem ég, Drottinn, er vel ánægður með, og tala ég þar til kirkjunnar í heild, en ekki til einstakra manna —

31 Því að ég, Drottinn, get ekki litið á synd með minnsta votti af undanlátssemi —

32 Eigi að síður verður þeim fyrirgefið, sem iðrast og fylgir boðorðum Drottins —

33 En frá þeim, sem eigi iðrast, verður jafnvel það ljós tekið, sem hann hefur hlotið, því að andi minn mun ekki endalaust takast á við manninn, segir Drottinn hersveitanna.

34 Og enn, sannlega segi ég yður, ó íbúar jarðar: Ég, Drottinn, er fús til að kunngjöra þetta öllu holdi —

35 Því að ég fer ekki í manngreinarálit, og vil að allir menn viti að dagurinn nálgast óðfluga. Stundin er enn ekki komin, en er í nánd, þegar friður verður burtu tekinn af jörðu og djöfullinn fær vald yfir sínu eigin yfirráðasvæði.

36 En Drottinn mun einnig hafa vald yfir sínum heilögu og ríkja mitt á meðal þeirra og koma og dæma Ídúmea, eða heiminn.

37 Kannið þessi boð, því að þau eru sönn og áreiðanleg og spádómarnir og fyrirheitin, sem í þeim felast, munu öll uppfyllast.

38 Það sem ég, Drottinn, hef talað, hef ég talað, og ég afsaka mig ekki. Og þótt himinn og jörð líði undir lok, mun orð mitt ekki líða undir lok, heldur allt uppfyllast, hvort sem það er sagt með minni eigin rödd eða með rödd þjóna minna, það gildir einu.

39 Því að sjá og tak eftir. Drottinn er Guð og andinn ber vitni og sá vitnisburður er sannur og sannleikurinn varir alltaf og að eilífu. Amen.