Námshjálp
ÞJS, Lúkas 14


ÞJS, Lúkas 14:35–37. Samanber Lúkas 14:34

Þeir sem þekkja Móse og spámennina trúa á Jesú.

35 Þá komu nokkrir þeirra til hans og sögðu: Góði meistari, við höfum Móse og spámennina, mun ekki hver sá sem fylgir orðum þeirra, lifa?

36 Og Jesús svaraði þeim og sagði: Þér þekkið ekki Móse eða spámennina, því ef þér hefðuð þekkt þá, hefðuð þér trúað á mig, því að í þeim tilgangi voru þeir skrifaðir. Því ég er sendur svo þér gætuð átt líf. Þess vegna mun ég líkja því við salt sem gott er.

37 En ef saltið sjálft hefur dofnað, með hverju á þá að krydda það?