2015
Gerðu kyndilinn þinn bjartari
október 2015


Börn

Gerðu kyndilinn þinn bjartari

Fyrir löngu í Grikklandi var keppt í hlaupi þar sem hlauparar héldu á logandi kyndli. Sá sem gat lokið hlaupinu með kyndilinn enn logandi varð sigurvegarinn. Uchtdorf forseti segir lífið vera líkt og keppni. Kyndillinn okkar er ljós Krists. Þegar við reynum að líkjast Jesú Kristi, þá logar kyndillinn okkar bjartar.

Hvað getið þið gert til að líkjast Jesú og láta kyndilinn ykkar loga bjartar? Veljið úr eftirfarandi lista:

  • Brosið til einhvers eða segið hæ við einhvern sem virðist einmana.

  • Verið reið út í einhvern.

  • Hirðið vel líkama ykkar.

  • Gerið gys að bróður ykkar eða systur.

  • Hlýðið spámanninum.

  • Gefist upp þegar ykkur verður á.

  • Hjálpið einhverjum.