2023
Ljós heimsins
Janúar 2023


„Ljós heimsins,“ Líahóna, jan. 2023.

Velkomin í þessa útgáfu

Ljós heimsins

Ljósmynd
Mynd af Jesú Kristi

Hluti af Einblína á gleði, eftir Michael T. Malm

Þegar við ferðumst gegnum þetta jarðneska líf, lendum við í raunum, þar á meðal erfiðum fjölskylduaðstæðum. Þær áskoranir geta valdið því að okkur finnst við yfirgefin, erum kvíðin eða þunglynd. Ef við snúum okkur að hinum sanna ljósgjafa, frelsaranum Jesú Kristi, munum við geta tekist betur á við erfiðar aðstæður okkar.

Í þessu blaði segir M. Russell Ballard forseti frá leiðum til að komast í gegnum vandamál. Hann segir: „Ljós [Krists] … fjarlægir skugga heimsins úr aðstæðum okkar og huga“ (síða 4).

Sem fyrrverandi hjónabands- og fjölskylduráðgjafi, vann ég með margar fjölskyldur sem stóðu frammi fyrir verulegum prófraunum. Fjölskyldurnar sem gáfu sér tíma á hverjum degi til að bjóða Kristi í líf sitt, upplifðu ljós hans og kærleika þegar þær tókust á við baráttu sína. Ég miðla nokkrum þessara frásagna í grein minni á síðu 8.

Ég er þakklát fyrir hið helga tækifæri sem mér gafst í starfi mínu til að sjá fjölskyldur og einstaklinga sameinast frelsaranum á þeirri leið sinni að verða Síonarfólk (sjá HDP Móse 7:18). Ég skynjaði brot af himni í hvert sinn sem ég sá hönd Drottins í lífi einhvers.

Með þökk,

Christy Monson