Tónlist
Þá ást og visku veitti hann


69

Þá ást og visku veitti hann

Rólega

1. Þá ást og visku veitti hann,

sem völdum himins réð,

að senda frá sér frelsarann,

á fórnardauðans tréð.

2. Og fórn þá Jesús fús til var,

að færa’ á sinni braut.

Hann saklaus vorar syndir bar,

og sýknun veröld hlaut.

3. Með hlýðni sinni verðlaun vann,

er varð hans sigurinn.

„Þinn vilji Guð, ó, verði hann,

en verði ekki minn.“

4. Hann sýndi veg og veitti leið,

á veginn heim til sín.

Þar dagsins eilíft lifir ljós

og ljómi Drottins skín.

Texti: Eliza R. Snow, 1804–1887

Lag: Thomas McIntyre, 1833–1914

Íslensk þýðing: MarÍus Ólafsson, 1891–1983

Hin dýrmæta perla Móse 4:1–2

Alma 42:14–15