2023
Jesús Kristur er alltaf svarið
Maí 2023


Jesús Kristur er alltaf svarið

Útdráttur

Ljósmynd
veggfóður

Hala niður veggfóðri

Eftir eina viku er páskadagur. Hann er mikilvægasta trúarathöfn fylgjenda Jesú Krists. Meginástæða þess að við höldum jólin er vegna páskanna. …

… Vegna Jesú Krists, getum við iðrast og hlotið fyrirgefningu synda okkar. Vegna hans, mun hvert okkar rísa upp. …

… Ég bið ykkur að koma til hans, svo að hann geti læknað ykkur! Hann mun lækna ykkur af synd er þið iðrist. Hann mun lækna ykkur af sorg og ótta. Hann mun lækna ykkur af meinum þessa heims.

Hvaða spurningar eða vandamál sem þið hafið, þá er svarið alltaf að finna í lífi og kenningum Jesú Krists. Lærið meira um friðþægingu hans, kærleika hans, miskunn hans, kenningu hans og hið endurreista fagnaðarerindi hans til lækningar og framþróunar. Komið til hans! Fylgið honum!

Jesús Kristur er ástæða þess að við byggjum musteri. Hvert þeirra er hans heilaga hús. Að gera sáttmála og taka á móti nauðsynlegum helgiathöfnum í musterinu, ásamt því að leitast við að komst nær honum þar, mun blessa líf ykkar á þann hátt sem engin önnur tilbeiðsluaðferð megnar að gera. Af þessum sökum gerum við allt sem í okkar valdi stendur til að gera blessanir musterisins aðgengilegri fyrir meðlimi okkar um allan heim. …

Kæru bræður og systur, ég ber vitni um að Jesús Kristur stjórnar málefnum kirkju sinnar. Ég ber vitni um að eina leiðin til varanlegrar hamingju er að fylgja honum.