2023
Merkasta páskasaga allra tíma
Maí 2023


Merkasta páskasaga allra tíma

Útdráttur

Ljósmynd
veggfóður

Hala niður veggfóðri

Kannski er spurningin sem við þurfum að spyrja okkur sjálf sú sem við þurfum öll að hugleiða: Hvernig mótum við kennslu og fögnuð yfir upprisu Jesú Krists, páskasögunni, af sama jafnvægi, fyllingu og ríkulegum trúarhefðum og fæðingu Jesú Krists, jólasögunni? …

… Til viðbótar við hin mikilvægu vers í Nýja Testamentinu um páskana, höfum við Síðari daga heilagir blessun hinnar undursamlegustu páskagjafar! … Ég er að sjálfsögðu að tala um Mormónsbók, nánar tiltekið frásögnina af því er Jesús Kristur birtist íbúum Nýja heimsins, í upprisnum líkama sínum. …

… Okkur langar að gera þessa kapítula í 3. Nefí að jafnþýðingarmiklum hluta páskahátíðar okkar og Lúkas 2 er í jólahefð okkar. Í raun miðlar Mormónsbók merkustu páskasögu allra tíma. Látum það ekki vera merkustu páskasöguna sem aldrei var sögð.

Ég býð ykkur samt að skoða Mormónsbók í nýju ljósi og hugleiða hið djúpstæða vitni sem hún ber um raunveruleika hins upprisna Krists, jafnt og fyllingu og dýpt kenningar Krists. …

Heimsókn hans, sem upprisins frelsara, kynntur af Guði föðurnum, er dýrðlegasti og sigursælasti páskaboðskapurinn. Það mun hjálpa fjölskyldum okkar að öðlast persónulegan vitnisburð um Jesú Krist sem frelsara okkar og lausnara, sem rauf hlekki dauðans.