2023
Slepptu aldrei tækifæri til að bera vitni um Krist
Maí 2023


Slepptu aldrei tækifæri til að bera vitni um Krist

Útdráttur

Ljósmynd
veggfóður

Hala niður veggfóðri

Þó að við njótum kannski ekki sömu nálægðar og þeir sem gengu með Kristi í jarðneskri þjónustu hans, þá getum við upplifað kraft hans hvern dag með heilögum anda! Eins mikið og við höfum þörf fyrir! …

… Nánd okkar við Krist vex við tíða tilbeiðslu í musterinu, daglega iðrun, lestur ritninganna, kirkjusókn og trúarskólasókn, hugleiðslu um patríarkablessun okkar, að meðtaka helgiathafnir verðuglega og heiðra helga sáttmála. Allt býður þetta andanum að upplýsa huga okkar og færir okkur meiri frið og vernd. Heiðrum við þetta sem heilög tækifæri til að bera vitni um Krist? …

Það felst kraftur í því að gera þessar heilögu venjur að meiru en bara gátlista og meira að vitni. Ferlið verður hægfara en við munum vaxa með daglegri, virkri þátttöku og ákveðinni reynslu með Kristi. Þegar við tileinkum okkur stöðugt kenningu hans, öðlumst við vitnisburð um hann; við þróum samband við hann og himneskan föður okkar. Við byrjum að verða eins og þeir eru.

Andstæðingurinn skapar svo mikinn hávaða að það getur verið erfitt að heyra rödd Drottins. … Okkur langar að skapa vöðvaminni lærisveinsins og vitnisburð sem mun beina athyglinni að daglegu trausti okkar á frelsaranum.

… Leitið Krists alls staðar – ég lofa ykkur að hann er þar! Sönn gleði felst í vilja okkar að koma nær Kristi og verða sjálf vitni.