2023
Jesús Kristur er styrkur foreldra
Maí 2023


Jesús Kristur er styrkur foreldra

Útdráttur

Ljósmynd
veggfóður

Hala niður veggfóðri

Rétt eins og Jesús Kristur er styrkur ungmenna, þá er Jesús Kristur líka styrkur foreldra. …

Elska foreldra til barns er eitt sterkasta afl alheimsins. Hún er eitt af því fáa á þessari jörðu sem sannlega getur verið eilíft. …

Annar styrkur sem þið hafið sem foreldri, er tækifæri til daglegra, viðvarandi áhrifa. …

Önnur áhrifamikil leið Drottins til að styðja foreldra, er með óviðjafnanlegri gjöf persónulegrar opinberunar. Guð vill óðfús úthella anda sínum foreldrum til leiðsagnar. …

Ef til vill er mikilvægasta hjálpin sem Jesús Kristur getur boðið foreldrum hin „mikla breyting“ hjartans. Það er kraftaverkið sem við öll þurfum á að halda. …

… Fyrir náð frelsarans, smátt og smátt, munið þið þróa fleiri eiginleika sem foreldrar þurfa: Elsku til Guðs og barna hans, þolinmæði, óeigingirni, trú á Krist og hugrekki til að taka réttar ákvarðanir. …

Viðleitni okkar til að stuðla að trú á Jesú Krist er heimamiðuð, sem tekur mið af einstaklingnum. Hún er líka styrkt af kirkjunni. Fyrir utan helgar ritningar og orð spámanna, býður kirkja frelsarans upp á mörg úrræði til að hjálpa foreldrum og börnum við að taka réttlátar ákvarðanir. …

Í áætlun himnesks föður er samböndum fjölskyldna ætluð að vera eilíf. Það er ástæðan fyrir því að þið, sem foreldri, gefist aldrei upp, jafnvel þótt þið séuð ekki stolt af því hvernig hlutirnir þróuðust í fortíðinni.

Með Jesú Kristi, meistaralækninum og frelsaranum, getur alltaf verið ný byrjun; það er alltaf von.

Jesús Kristur er styrkur fjölskyldu[,] [ungmenna] [og] foreldra.