2023
Kenningar Jesú Krists
Maí 2023


Kenningar Jesú Krists

Útdráttur

Ljósmynd
veggfóður

Hala niður veggfóðri

Eins og spámaðurinn Nefí kenndi okkur ættum við að „endurnærast af orðum Krists. Því að sjá. Orð Krists munu segja yður að fullu, hvað yður ber að gjöra.“1 … Boðskapur minn samanstendur af úrvali orða frelsara okkar – því sem hann sagði. …

„[Þetta er æðsta boðorð lögmálsins]: Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum.

Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð.

Annað er þessu líkt: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.

Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir.“2

„Sannlega, sannlega segi ég yður, að þér verðið að halda vöku yðar og biðja án afláts, svo að djöfullinn freisti yðar ekki og leiði yður ánauðug burt.“3

„Hvað sem þér þess vegna gjörið, það skuluð þér gjöra í mínu nafni. Þess vegna skuluð þér nefna kirkjuna mínu nafni.“4

„En þetta er boðorðið: Iðrist, öll endimörk jarðar og komið til mín og látið skírast í mínu nafni, svo að þér megið helgast fyrir móttöku heilags anda og þér fáið staðið flekklaus frammi fyrir mér á efsta degi.“5

Við trúum á Krist. Ég lýk með því sem hann sagði varðandi það hvernig við getum borið kennsl á og fylgt kenningu hans:

„En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni mun kenna yður allt og minna yður á allt það sem ég hef sagt yður.“6