2023
Finna persónulegan frið
Maí 2023


Finna persónulegan frið

Útdráttur

Ljósmynd
veggfóður

Hala niður veggfóðri

Í dag mun ég tala um það sem ég hef lært um það kraftaverk að finna persónulegan frið, hverjar sem aðstæður okkar eru. …

Ég hef lært að minnsta kosti fimm sannindi af … kennslu frelsarans.

Í fyrsta lagi er gjöf friðar gefin eftir að við höfum þá trú að halda boðorð hans. …

Í öðru lagi mun heilagur andi koma og dvelja hjá okkur. …

Í þriðja lagi lofar frelsarinn því að þegar við höldum sáttmála okkar, getum við fundið kærleika föðurins og sonarins til annarra og okkar sjálfra. …

Í fjórða lagi krefst það meira en hlýðni að halda boðorð Drottins. Okkur er boðið að elska Guð af öllu hjarta, mætti, huga og sál. …

Í fimmta lagi er ljóst að Drottinn elskaði okkur svo heitt að hann greiddi gjaldið fyrir syndir okkar, svo að við gætum – fyrir trú okkar á hann og iðrun, fyrir tilverknað friðþægingar hans – hlotið gjöf friðar, sem er „æðri öllum skilningi” [Filipíbréfið 4:7], í þessu lífi, með honum að eilífu. …

Meðlimir víðs vegar í kirkjunni hafa skynjað gjöf Drottins um persónulegan frið. Hann er að hvetja alla til að hjálpa öðrum að hljóta tækifæri til að koma til sín og verða sjálfir hæfir fyrir sama frið. Þeir munu síðan, á sama hátt, velja að leita innblásturs til að vita hvernig þeir geti fært öðrum þessa gjöf.

Hin upprennandi kynslóð mun ala upp kynslóðina sem á eftir kemur. Margföldunaráhrifin munu leiða til kraftaverks. Það mun breiðast út og vaxa með tímanum og ríki Drottins á jörðu mun verða undir það búið að taka á móti honum með hósannahrópum. Það verður friður á jörðu.