Scripture Stories
Elísa læknar Naaman


„Elísa læknar Naaman,“ Sögur úr Gamla testamentinu (2022)

„Elísa læknar Naaman,“ Sögur úr Gamla testamentinu

2. Konungabók 5

Elísa læknar Naaman

Hvernig undursamlegt kraftaverk gerðist í kjölfar trúar

Ljósmynd
Naaman liggur sjúkur í rúmi

Langt í burtu í Sýrlandi bjó maður að nafni Naaman. Hann var mikill foringi í hersveit Sýrlands. Naaman stríddi við sársaukafullan húðsjúkdóm sem kallast líkþrá.

2. Konungabók 5:1

Ljósmynd
Ísraelsk stúlka á tali við eiginkonu Naamans

Ísraelsk stúlka var í þjónustu eiginkonu Namans. Stúlkan trúði á Drottin. Hún sagði að ef Naaman færi til spámannsins Elísa, myndi hann læknast af sjúkdómi sínum.

2. Konungabók 5:2–4

Ljósmynd
Naaman ferðast til samfundar við Elísa

Naaman ferðaðist langa leið til að finna Elísa. Naaman hélt að hann myndi læknast með undursamlegu kraftaverki.

2. Konungabók 5:5–8

Ljósmynd
Naaman á tali við þjón Elísa

Naaman fór til heimilis Elísa með þjóna sína, hesta og vagna. Elísa sendi þjón sinn til að gefa Naaman fyrirmæli Drottins. Drottinn myndi lækna Naaman ef hann myndi lauga sig sjö sinnum í áni Jórdan.

2. Konungabók 5:9–10

Ljósmynd
Naaman möglar við ána

Naaman var reiður því hann vildi að spámaður Drottins kæmi út og læknaði sig án tafar. Naaman möglaði yfir því að áin Jórdan væri ekki jafn góð og hinar miklu ár í Sýrlandi.

2. Konungabók 5:11–12

Ljósmynd
þjónn á tali við Naaman við á

Þjónar Naamans spurðu Naaman af hverju hann vildi ekki gera svona einfalt verk. Þótt Naaman fyndist ekkert vit vera í þessu, þá hafði spámaður Drottins beðið hann að gera þetta.

2. Konungabók 5:13.

Ljósmynd
Naaman heill í áni Jórdan

Naaman lét af þrákelkni sinni og hlustaði á þjóna sína. Hann laugaði sig sjö sinnum í áni Jórdan. Drottinn læknaði þá Naaman, eins og Elísa hafði sagt. Naaman vissi að Elísa væri spámaður og að Drottinn væri raunverulegur.

2. Konungabók 5:14–15