Aðalráðstefna
Jesús Kristur er alltaf svarið
Aðalráðstefna apríl 2023


Jesús Kristur er alltaf svarið

Hvaða spurningar eða vandamál sem þið hafið, þá er svarið alltaf að finna í lífi og kenningum Jesú Krists.

Kæru bræður og systur, við höfum fengið andlega næringu þessa síðustu tvo daga. Kórtónlistin var framúrskarandi. Þau sem hafa talað, hafa verið verkfæri Drottins. Ég bið þess að þið leitið heilags anda ykkur til leiðsagnar í námi ykkar er þið hugleiðið sannleikann sem kenndur er úr þessum ræðustól. Hann hefur sannlega verið himnasending.

Eftir eina viku er páskadagur. Hann er mikilvægasta trúarathöfn fylgjenda Jesú Krists. Meginástæða þess að við höldum jólin er vegna páskanna. Lexían í Kom, fylg mér fyrir þessa viku mun hvetja ykkur til að læra um sigurinnreið frelsarans í Jerúsalem, hreinsun hans á musterinu, þjáningar hans í Getsemanegarðinum, krossfestingu hans, dýrlega upprisu hans og birtingu hans frammi fyrir fylgjendum sínum í kjölfarið.1

Njótið þessara helgu versa og finnið allar leiðir sem þið getið til að þakka himneskum föður okkar fyrir að hafa sent okkur eingetinn son sinn.2 Vegna Jesú Krists, getum við iðrast og hlotið fyrirgefningu synda okkar. Vegna hans, mun hvert okkar rísa upp.

Ég býð ykkur líka að læra aftur frásögnina um frelsarann birtast Nefítunum í Ameríku, eins og skráð er í 3. Nefí. Ekki löngu fyrir þá birtingu, heyrðist rödd hans meðal fólksins, þar á meðal þessi bónarorð:

„Viljið þér nú ekki snúa til mín og iðrast synda yðar og snúast til trúar, svo að ég megi gjöra yður heila?

… Armur miskunnar minnar er útréttur til yðar, og ég mun taka á móti hverjum þeim, sem koma vill.“3

Kæru bræður og systur, Jesús Kristur færir ykkur þetta sama boð í dag. Ég bið ykkur að koma til hans, svo að hann geti læknað ykkur! Hann mun lækna ykkur af synd er þið iðrist. Hann mun lækna ykkur af sorg og ótta. Hann mun lækna ykkur af meinum þessa heims.

Hvaða spurningar eða vandamál sem þið hafið, þá er svarið alltaf að finna í lífi og kenningum Jesú Krists. Lærið meira um friðþægingu hans, kærleika hans, miskunn hans, kenningu hans og hið endurreista fagnaðarerindi hans til lækningar og framþróunar. Komið til hans! Fylgið honum!

Jesús Kristur er ástæða þess að við byggjum musteri. Hvert þeirra er hans heilaga hús. Að gera sáttmála og taka á móti nauðsynlegum helgiathöfnum í musterinu, ásamt því að leitast við að komst nær honum þar, mun blessa líf ykkar á þann hátt sem engin önnur tilbeiðsluaðferð megnar að gera. Af þessum sökum gerum við allt sem í okkar valdi stendur til að gera blessanir musterisins aðgengilegri fyrir meðlimi okkar um allan heim. Í dag er ég þakklátur fyrir að tilkynna ráðagerð okkar um að byggja nýtt musteri á hverjum eftirtalinna staða:

  • Retalhuleu, Gvatemala

  • Iquitos, Perú

  • Teresina, Brasilíu

  • Natal, Brasilíu

  • Tuguegarao-borg, Filippseyjum

  • Iloilo, Filippseyjum

  • Jakarta, Indónesíu

  • Hamborg, Þýskalandi

  • Lethbridge, Alberta, Kanada

  • San Jose, Kaliforníu

  • Bakersfield, Kaliforníu

  • Springfield, Missouri

  • Charlotte, Norður-Karólínu

  • Winchester, Virginíu

  • Harrisburg, Pennsylvaníu

Kæru bræður og systur, ég ber vitni um að Jesús Kristur stjórnar málefnum kirkju sinnar. Ég ber vitni um að eina leiðin til varanlegrar hamingju er að fylgja honum. Ég veit að kraftur hans er að koma yfir fólk hans sem heldur sáttmála sína, sem „[vopnað er] réttlæti og krafti Guðs í mikilli dýrð.“4 Ég ber þessu vitni, af elsku og með blessun minni til ykkar allra, í hinu helga nafni Jesú Krists, amen.