Aðalráðstefna
Stuðningur við aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu og aðalembættismenn
Aðalráðstefna október 2022


Stuðningur við aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu og aðalembættismenn

Bræður og systur, það eru forréttindi að kynna aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu og aðalembættismenn kirkjunnar og biðja um stuðning ykkar.

Sýnið vinsamlega stuðning ykkar á hefðbundinn hátt, hvar sem þið kunnið að vera. Ef einhverjir eru á móti einhverju því sem hér verður lagt fram, biðjum við að þeir hafi samband við stikuforseta sinn.

Þess er beiðst að við styðjum Russell Marion Nelson, sem spámann, sjáanda og opinberara og forseta Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu; Dallin Harris Oaks, sem fyrsta ráðgjafa í Æðsta forsætisráðinu; og Henry Bennion Eyring, sem annan ráðgjafa í Æðsta forsætisráðinu.

Þeir sem eru því samþykkir, sýni það.

Þeir sem eru því mótfallnir, sýni það.

Þess er beiðst að við styðjum Dallin H. Oaks, sem forseta Tólfpostulasveitarinnar og M. Russell Ballard, sem starfandi forseta Tólfpostulasveitarinnar.

Allir sem eru því samþykkir, sýni það.

Ef einhver á móti, sýni hann það.

Þess er beiðst að við styðjum, sem meðlimi Tólfpostulasveitarinnar: M. Russell Ballard, Jeffrey R. Holland, Dieter F. Uchtdorf, David A. Bednar, Quentin L. Cook, D. Todd Christofferson, Neil L. Andersen, Ronald A. Rasband, Gary E. Stevenson, Dale G. Renlund, Gerrit W. Gong og Ulisses Soares.

Þeir sem eru því samþykkir, sýni það.

Sé einhver á móti, sýni hann það.

Þess er beiðst að við styðjum ráðgjafana í Æðsta forsætisráðinu og Tólfpostulasveitina, sem spámenn, sjáendur og opinberara.

Allir sem það samþykkja, sýni það.

Ef einhver á móti, sýni hann það með sama merki.

Við höfum leyst af öldungana Weatherford T. Clayton, LeGrand R. Curtis Jr., Randy D. Funk, Christoffel Golden, Walter F. González, Larry S. Kacher, Lynn G. Robbins og Joseph W. Sitati, sem aðalvaldhafa Sjötíu, en þeir verða áfram heiðraðir sem fyrrverandi aðalvaldhafar.

Þeir sem vilja sýna þessum bræðum og eiginkonum þeirra og fjölskyldum þakklæti fyrir áralanga dygga þjónustu, sýni það vinsamlega með handauppréttingu.

Við vekjum einnig athygli á og þökkum þeim svæðishöfum Sjötíu sem lokið hafa þjónustu sinni á liðnu ári, nöfn þeirra er að finna á newsroom.ChurchofJesusChrist.org.

Þeir sem vilja sýna þessum bræðum þakklæti fyrir framúrskarandi þjónustu, sýni það.

Þess er beiðst að við styðjum aðra aðalvaldhafa og svæðishafa Sjötíu, þar með talda sex nýja svæðishafa Sjötíu, sem kynntir voru fyrr í vikunni á newsroom.ChurchofJesusChrist.org, og aðalembættismenn eins og skipan þeirra er nú.

Allir sem eru því samþykkir, sýni það með uppréttingu handar.

Sé einhver á móti, sýni hann það.

Bræður og systur, við þökkum fyrir stöðuga trú ykkar og bænir í þágu leiðtoga kirkjunnar.

Breytingar á svæðishöfum Sjötíu

Eftirtaldir svæðishafar Sjötíu voru studdir á leiðtogafundi sem haldinn var sem hluti af aðalráðstefnu:

Ricardo J. Battista, Willy Binene, Bernhard Cziesla, Nathan R. Emery, Sione Tuione, Yves S. Weidmann.

Eftirtaldir svæðishafar Sjötíu voru leystir af þann 1. ágúst 2022:

Luis R. Arbizú, Michael V. Beheshti, David A. Benalcázar, Berne S. Broadbent, Kevin E. Calderwood, Luciano Cascardi, Ting Tsung Chang, Ariel E. Chaparro, Pablo H. Chavez, Raymond A. Cutler, José L. Del Guerso, Alessandro Dini Ciacci, Carlos R. Fusco Jr., Jorge A. García, Gary F. Gessel, Karl D. Hirst, Ren S. Johnson, Jay B. Jones, Paul N. Lekias, Artur J. Miranda, Elie K. Monga, A. Fabio Moscoso, Yutaka Nagatomo, Juan C. Pozo, Anthony Quaisie, Martin C. Rios, Sandino Roman, Johnny F. Ruiz, Rosendo Santos, Gordon H. Smith, K. Roy Tunnicliffe.

Öldungur Levi W. Heath og öldungur ‘Inoke F. Kupu, sem þjónuðu sem svæðishafar Sjötíu, létust árið 2022.