Aðalráðstefna
Einblínið á musterið
Aðalráðstefna október 2022


Einblínið á musterið

Ég lofa því að aukinn tími í musterinu mun blessa líf ykkar á þann hátt sem ekkert annað getur gert.

Kæru bræður og systur, á þessum fimm stórkostlegu aðalráðstefnuhlutum höfum við enn og aftur upplifað að himnarnir eru opnir! Ég bið þess að þið hafið skráð áhrif ykkar og munið fylgja þeim eftir. Himneskur faðir og hans elskaði sonur, Jesús Kristur, eru reiðubúnir til að hjálpa ykkur. Ég hvet ykkur til að auka viðleitni ykkar til að leita hjálpar þeirra.

Nýlega fengum ég og systir Nelson tækifæri til að frumskoða nýju fjórðu seríuna af Mormónsbókarmyndböndunum.1 Þau innblésu okkur! Ég ætla að sýna ykkur stutt brot úr atriðinu sem sýnir frelsarann birtast Nefítunum.

Mikilvægt er að frelsarinn hafi valið að birtast fólkinu í musterinu. Það er húsið hans. Það er fyllt af krafti hans. Við skulum aldrei missa sjónar á því sem Drottinn er að gera fyrir okkur núna. Hann er að gera musteri sín aðgengilegri. Hann er að flýta fyrir því að við byggjum musteri. Hann er að auka getu okkar til að hjálpa við samansöfnun Ísraels. Hann gerir það líka auðveldara fyrir okkur að verða andlega fáguð. Ég lofa því að aukinn tími í musterinu mun blessa líf ykkar á þann hátt sem ekkert annað getur gert.

Við höfum núna 168 starfrækt musteri og 53 ný musteri í byggingu og önnur 54 á hönnunarstigi fyrir byggingu!2 Það gleður mig að tilkynna áætlanir okkar um að byggja nýtt musteri á hverjum eftirtalinna staða: Busan, Kóreu; Naga, Filippseyjum; Santiago, Filippseyjum; Eket, Nígeríu; Chiclayo, Perú; miðborg Buenos Aires, Argentínu; Londrina, Brasilíu; Ribeirão Prêto, Brasilíu; Huehuetenango, Gvatemala; Jacksonville, Flórída; Grand Rapids, Michigan; Prosper, Texas; Lone Mountain, Nevada; og Tacoma, Washington.

Við ætlum líka að byggja mörg musteri á völdum fjölmennum stórborgarsvæðum, þar sem ferðatími til núverandi musteris er mikil áskorun. Þess vegna nýt ég þeirrar ánægju að tilkynna um fjóra staði til viðbótar nálægt Mexíkóborg, þar sem ný musteri verða byggð í Cuernavaca, Pachuca, Toluca og Tula.

Kæru bræður og systur, megið þið einblína á musterið á þann hátt sem þið hafið aldrei áður gert. Ég blessa ykkur, að þið vaxið nær Guði og Jesú Kristi á hverjum degi. Ég elska ykkur. Megi Guð vera með ykkur uns við hittumst heil, er bæn mín, í hinu helga nafni Jesú Krists, amen.

Heimildir

  1. Þessi nýju myndbönd verða fáanleg á mörgum tungumálum í Gospel Library og á öðrum rásum. Þættir verða gefnir út vikulega frá og með deginum í dag, eftir ráðstefnu.

  2. Frá og með 1. október 2022 er verið að endurnýja fjögur musteri til viðbótar (St. George Utah, Manti Utah, Salt Lake, og Columbus Ohio) og þrjú bíða vígslu (Hamilton Nýja-Sjálandi, Quito Ekvador og Belém Brasilíu).