Líahóna
Finna ljós frelsarans í Mormónsbók
Janúar 2024


„Finna ljós frelsarans í Mormónsbók,“ Líahóna, jan. 2024.

Fyrir foreldra

Finna ljós frelsarans í Mormónsbók

Ljósmynd
fjölskylda les saman

Kæru foreldrar,

Útgáfa þessa mánaðar veitir innsýn í Mormónsbók sem námsefni Kom, fylg mér fyrir árið 2024. Greinin hér að neðan bendir á lykilatriði til að finna ljós og sannleika í heimi sem svo oft er fylltur myrkri og ringulreið.

Trúarlegar umræður

Leita að ljósi frelsarans

Íhugið að miðla fjölskyldu ykkar nokkrum hugmyndum úr grein Eyrings forseta á síðu 4 og ræðið hlutverkið sem ljós hefur í lífi okkar. Skoðið sögu Kamryn um að finna frelsarann í myrkrinu. Hvernig getur fjölskylda ykkar fundið ljós frelsarans í Mormónsbókarnámi sínu á þessu ári?

Hvar leita skal að sannleika

Guð er uppspretta alls sannleika og við getum lært sannleika hans með því að leita hans kostgæfilega. Öldungur og systir Silva þurftu að ákveða hvar þau ættu að búa eftir að snúa heim af trúboði, svo þau leituðu leiðsagnar Drottins (sjá síðu 20). Hvenær hefur Drottinn veitt ykkur þá leiðsögn sem þið þurfið á að halda?

Sjá meira í ritningarnámi ykkar

Þegar fólk heimsækir listasafn flýtir það sér oft til að geta séð allt, sem veldur því að það missir mögulega af fegurð listaverkanna. Líkt þessu, gætu lesendur Mormónsbókar misst af mikilvægum sannleika ef þeir flýta sér við lesturinn. Hvaða áætlun getur hjálpað okkur að rannsaka vandlega þessa bók ritninganna? Sjá síðu 12 fyrir hugmyndir

Kom, fylg mér Fjölskylduskemmtun

Hinn krappi og þröngi vegur

1. Nefí 8; 11; 15

Að neyta ávaxtar lífsins trés er táknrænt fyrir að velja eilíft líf í gegnum Jesú Krist (sjá 1. Nefí 15:36; Kenning og sáttmálar 14:7). Prófið að gera þetta verkefni til að læra hvernig járnstöngin (orð Guðs) leiðir okkur til þessarar mestu gjafar Guðs.

  1. Límið mynd af lífsins tré á vegg.

  2. Límið spotta (táknrænt fyrir járnstöngina) undir myndina og látið einhvern standa hinum megin í herberginu með hinn enda spottans.

  3. Mælið hversu langan tíma það tekur fyrir barn með bundið fyrir augu að ganga frá einum enda herbergisins til lífsins trés án þess að halda í spottann.

  4. Mælið nú hversu langan tíma það tekur að komast að lífsins tré með því að halda í spottann.

Umræða: Hvað getum við gert til að halda í járnstöngina og sleppa aldrei?