2007
Listasafnið greinir frá áttundu alþjóðlegu listaverkakeppninni
Apríl 2007


Listasafnið greinir frá áttundu alþjóðlegu listaverkakeppninni

Sögu- og listasafn kirkjunnar hefur greint frá þema áttundu alþjóðlegu listaverkakeppninnar og býður þegnum kirkjunnar um heim allan að taka þátt í sýningu hennar, sem halda á 20. mars til 11. október 2009.

Þema sýningarinnar er „Minnist þess undursamlega sem Guðs er,“ og nær það yfir reynslu Síðari daga heilagra hvarvetna. Listaverkin eiga að kynna þema, hugmynd, fólk eða stað sem tengist (1) kenningum og trúarskoðunum Síðari daga heilagra, þ.m.t. sögur úr ritningunum og kenningar spámannanna, (2) atburði, staði og einstakinga úr sögu kirkjunnar og fólk hennar eða (3) tileinkun trúargilda í lífi Síðari daga heilagra, þ.m.t. í athöfnum er tengjast kirkju, fjölskyldu og einstaklingum.

Listakeppnin er opin þeim þegnum kirkjunnar sem eru 18 ára og eldri miðað við 31. desember 2008. Hverjum listamanni er heimilt að senda inn eitt verk. Heimilt er að nota öll menningarsvið heimsins, listform og listaðferðir. Listaverkin þurfa að hafa verið fullunnin eftir 1. janúar 2006.

Skráningareyðublöð verða send í pósti til þeirra listamanna sem verða á póstlista safnsins í apríl 2008. Eyðublöðin verða einnig aðgengileg á vefsíðu safnsins. Skrifið til safnsins til að láta skrá ykkur á póstlistann eða breyta upplýsingum um ykkur, ef þið eruð þegar á listanum, og sendið til: Eighth International Art Competition, Museum of Church History and Art, 45 North West Temple St., Rm. 200, Salt Lake City, UT, 84150-3470, USA, eða sendið netpóst á churchmuseum @ldschurch.org.

Fyrsta matsumferð byggist á ljósmyndum af listaverkunum sem sendar verða ásamt skráningareyðublöðum sem send verða með netpósti eða venjulegum pósti fyrir 10. október 2008. Mat listaverkanna verður byggt á þeim árangri sem menn ná í að tjá þemað; listfengi og tækni; og sköpunargildi, frumleika og listgildi. Viðurkenningar felast í kaupum á listaverkunum, nokkur listaverkanna keypt og þeim bætt í safn kirkjunnar; 25 peningaverðlaunum fyrir listaverk, sem dómsnefnd velur, og 3 peningaverðlaunum fyrir listaverk, sem gestir velja.

Fara skal á vefsíðu listasafnsins til að fá frekari upplýsingar um keppnina eða til að sjá listaverk fyrri keppna, á www.lds.org/churchhistory/museum/ competition.